Actavis think smart medicine

Ísland


STUÐNINGUR

Forvarnardagurinn, samveraTil að sækja um styrk:

Rafrænt umsóknareyðublað á vefnum

Styrkbeiðnir eru teknar fyrir á mánaðarlegum fundi.

Actavis leggur metnað sinn í að taka þátt í samfélagslegum verkefnum á starfssvæðum sínum.

Með þátttöku í þeim vill Actavis láta gott af sér leiða á sviðum sem snerta velferð barna, heilbrigði, þekkingarsköpun og íþróttir.

Af verkefnum félagsins á þessu sviði má nefna Forvarnardaginn, sem haldinn er í samstarfi við forseta Íslands, stuðning við Hauka og FH, Íþróttafélag fatlaðra og mörg önnur íþróttafélög. Þá studdi félagið gerð kvikmyndarinnar Sólskinsdrengsins, og einnig Krabbameinsfélagið og geðsvið Landspítalans. Af öðrum stórum styrktarverkefnum má nefna að Actavis var aðalstyrktaraðili Gefðu líf, en í sjónvarpssöfnun söfnuðust 65 milljónir króna og einnig var Actavis einn aðalbakhjarlinn við sölu á K-lyklinum, til styrktar geðsjúkum. Þá hefur Actavis ákveðið að styrkja Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum um 30 milljónir króna.

  • til baka
  • prenta
  • senda