Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Íþróttir

FH-ingar fagna marki sumarið 2009. Actavis er aðalstyrktaraðili FH.

Knattspyrnudeild FH
Actavis er styrktaraðili knattspyrnudeildar FH. 

Hafnarfjarðarfélagið varð Íslandsmeistari í meistaraflokki karla í þrjú ár í röð, varð meistari í fyrsta sinn árið 2004 og síðan 2005 og 2006. Þá tryggði liðið sér Íslandsmeistaratitilinn 2008 og varð bikarmeistari 2007.

FH-ingar leika í búningum merktum Actavis og 'Risinn' - knatthús félagsins í Kaplakrika sem tekið var í notkun vorið 2005, er merkt Actavis og öðrum styrktaraðilum byggingarinnar.

Actavis styður HaukaKörfuknattleiksdeild Hauka
Actavis hefur verið aðalstyrktaraðili körfuknattleiksdeildar Hauka frá árinu 2004. Samningurinn kveður á um stuðning við alla aldurshópa félagsins og lögð er áhersla á þátttöku í barnastarfi. Sérstök áhersla er lögð á stuðning við meistaraflokk kvenna, sem hefur náð framúrskarandi árangri undanfarin ár.

Þá leggur Actavis sitt af mörkum við kynningarstarf á körfuknattleik í Hafnarfirði, með það að markmiði að fjölga iðkendum í félaginu. Actavis hefur m.a. boðið öllum krökkum í Hafnarfirði á aldrinum 12-13 ára frí æfingagjöld í einn mánuð og bolta.

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum sumarið 2009. Actavis styrkir framkvæmd mótsins.Frjálsíþróttasambandið
Actavis styrkir framkvæmd móta á vegum FRÍ eins og félagið hefur gert um árabil. Þar er um að ræða Meistaramót Íslands, Bikarkeppni og sjónvarpsútsendingar frá Gullmótunum.

Íþróttasamband fatlaðra
Actavis er samstarfsaðili Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) vegna Ólympíumóts fatlaðra í Peking árið 2008. Samningurinn er til þriggja ára og felst í honum fjárhagslegur stuðningur Actavis vegna undirbúnings og þátttöku íslensku keppendanna á mótinu.

  • til baka
  • prenta
  • senda