Styrkir til doktorsnema í lyfjafræði
Actavis styrkir doktorsnám við lyfjafræðideild Háskóla Íslands með árlegu framlagi að upphæð 3,5 milljónir króna til ársins 2010.
Sigurður Óli Ólafsson, aðstoðarforstjóri Actavis, tilkynnti um styrkinn í móttöku sem haldin var í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá því kennsla í lyfjafræði hófst í Háskólanum.
Styrknum er ætlað að fjármagna rannsóknir doktorsnema.
Auglýst verður eftir verkefnum í sjóðinn.