Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Actavis á Íslandi

Actavis sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja.

Á þróunarsviði Actavis á Íslandi eru um 150 starfsmennActavis á Íslandi framleiðir og selur lyf og lyfjahugvit bæði innanlands sem utan.

Mikil áhersla er lögð á gæðamál og uppfylla lyfjaverksmiðjur og tækjabúnaður félagsins kröfur um góða framleiðsluhætti í lyfjagerð (Good Manufacturing Practice).

Verksmiðjan í Hafnarfirði er hönnuð með þarfir Bandaríkjamarkaðar í huga og hefur hlotið verðlaun fyrir framúrskarandi hönnun.

 

Starfsemi Actavis á Íslandi

Rekstrareiningar Actavis á Íslandi eru þrjár:

Höfuðstöðvar Actavis Group eru í Hafnarfirði og þar starfa um 250 starfsmenn. Þróunarsviðið er þar fjölmennast með um 150 starfsmenn.
Vefur Actavis Group (á ensku)
Forstjóri Actavis Group er Claudio Albrecht (upplýsingar á ensku)

Actavis hf. er eitt af dótturfyrirtækjum samstæðunnar og er framleiðslueining fyrirtækisins hér á Íslandi. Um 270 starfsmenn starfa hjá Actavis hf. , flestir á framleiðslu- og gæðasviðum.
Framkvæmdastjóri Actavis hf. á Íslandi er Jón Gunnar Jónsson

Medis ehf. er annað dótturfyrirtæki samstæðunnar og sér um sölu á lyfjum og lyfjahugviti til þriðja aðila. Hjá Medis á Íslandi starfa um 30 manns.
Vefur Medis (á ensku)

 

Fyrst á markað
Eitt af markmiðum Actavis er að vera með þeim fyrstu á markaðinn með samheitalyf þegar einkaleyfi renna út. Þar sem einkaleyfaumhverfið er hagstætt á Íslandi getur Actavis á Íslandi unnið að þróun lyfs þrátt fyrir að það sé verndað af einkaleyfum í flestum Evrópulöndum og verið tilbúið að markaðssetja lyf um leið og einkaleyfi þess fellur úr gildi erlendis.

  • til baka
  • prenta
  • senda

Móðurfélagið

Actavis Group er móðurfélag Actavis á Íslandi.

Höfuðstöðvar á Íslandi Starfsemi í um 40 löndum Starfsemi í fimm heimsálfum10.000 starfsmenn650 starfsmenn á Íslandi Forstjóri Actavis Group:
Claudio Albrecht
Aðstoðarforstjóri Actavis Group:
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir

Vefur Actavis Group (á ensku)

 

Saga Actavis Saga Actavis á Íslandi nær allt aftur til ársins 1956 þegar forveri Actavis, Pharmaco var stofnað. Pharmaco var í upphafi innkaupasamband en strax árið 1960 var hafin framleiðsla á lyfjum hjá fyrirtækinu.

Nánar má fræðast um helstu viðburði í sögu Actavis á vef móðurfélagsins (á ensku).