Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Öryggis og umhverfismál

Actavis - Öryggis- og umhverfismál Stefna Actavis á Íslandi í öryggis-, heilsu- og umhverfismálum

Actavis sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja.

Stefna okkar er að starfa á ábyrgðarfullan hátt í samfélaginu og að í allri starfseminni séu umhverfissjónarmið, ásamt öryggi og heilsu starfsmanna höfð að leiðarljósi.

Meginmarkmið:

Að sérhverjum starfsmanni líði vel og að hann fari ávallt heill heim úr vinnu Að starfsumhverfið sé öruggt og heilsusamlegtAð vernda og hlúa að umhverfinu með því að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar, með því að hafa stöðugar umbætur í huga Að efla vitund starfsmanna um öryggis- heilsu- og umhverfismál með reglubundinni fræðslu og þjálfunAð fylgja kröfum laga og reglna svo og öðrum kröfum varðandi öryggis- heilsu- og umhverfismálAð vera í fararbroddi fyrirtækja í öryggis- heilsu- og umhverfismálum

Leiðir:

Setja skýr markmið og vinna stöðugt að bættum árangri fyrirtækisins í öryggis- heilsu- og umhverfismálumMeta reglulega starfsumhverfi og líðan starfsmanna með því að innleiða kerfisbundna stjórnun öryggis- og heilsumálaLágmarka mengun frá fyrirtækinu með því að vakta og mæla umhverfisþætti starfseminnar, flokka úrgang, auka endurvinnslu og endurnýtingu úrgangsGera sömu öryggis- heilsu- og umhverfiskröfur til allra sem starfa á vegum Actavis, þ.m.t. ráðgjafa, þjónustuaðila og verktakaHafa stefnuna að leiðarljósi í öllum samstarfsverkefnum sem unnin eru á Íslandi undir forystu ActavisKynna skal öryggis- heilsu- og umhverfisstefnuna fyrir öllu starfsfólki, verktökum og þjónustuaðilum fyrirtækisins og birta hana á Actavis.is

 

Umhverfisþættir - Áhættumat

Áhættumatsferli Actavis tekur til greiningar á umhverfisþáttum fyrirtækisins ásamt hugsanlegum umhverfisáhrifum af rekstrinum.

Umhverfisþáttur er skilgreindur þannig, að hann sé hluti af starfsemi fyrirtækis, vöru eða þjónustu þess og sem getur haft gagnkvæma verkun á umhverfið.

Umhverfisáhrif eru skilgreind þannig að um sé að ræða atvik sem geti haft jákvæð eða neikvæð áhrif á umhverfið og stafi að öllu eða einhverju leiti af starfsemi fyrirtækisins.

Myndin lýsir starfsemi og umhverfisþáttum Actavis á Íslandi:

 Starfsemi og umhverfisþættir Actavis á Íslandi

 

  • til baka
  • prenta
  • senda

Umhverfisvottun

ISO 14001 lógó - Actavis vottun






Actavis á Íslandi hefur hlotið
ISO 14001 vottun
fyrir umhverfisstjórnun
Vottunin nær yfir lyfjaframleiðslu, þróun og gerð lyfja til skráningar.

Tengdar fréttir


Actavis á Íslandi fær ISO-umhverfisvottun

Stefna Actavis

Öryggis- og umhverfisstefna Actavis (pdf)

Öryggis-, heilsu- og umhverfisstjóri Actavis á Íslandi er Leó Sigurðsson.

Innleiðing

Actavis gerir sér grein fyrir því, að til þess að góður árangur náist í öryggis- og umhverfismálum þá þurfi að standa vörð um öfluga menningu fyrirtækisins í þessum efnum.

Til þess að ná tilætluðum árangri ætlar Actavis að fá í lið með sér mestu auðlind fyrirtækisins sem er starfsfólkið, en með þeim munu helstu sérfræðingar fyrirtækisins í öryggis- og umhverfismálum starfa.

Liður í þessu er að skilgreina og að leggja mat á allar þær hugsanlegu hættur sem eru í vinnuumhverfinu og að framkvæma áhættumat með það fyrir augum að draga úr eða að koma í veg fyrir aðstæður sem leitt geta til vinnuslysa, atvinnu-sjúkdóma og/eða annarra neikvæðra umhverfisáhrifa. Í þessu samhengi má nefna, að vinnuhópar hafa framkvæmt áhættumat á starfsemi fyrirtækisins.

Jafnframt þessu hafa sérfræðingar framkvæmt sérhæft áhættumat þar sem þess er krafist. Þar að auki hefur verið innleitt sérstakt kerfi sem tryggir að allar verklagsreglur innan fyrirtækisins þurfa að fara í gegnum áhættumatsferli, hvort sem um er að ræða nýjar eða endurútgefnar verklagsreglur.

Actavis leggur mikla áherslu á forvarnir í öryggis-, heilsu- og umhverfismálum. Þess vegna er lögð mikil áhersla á þjálfun starfsmanna og allir nýir starfsmenn fá nýliðafræðslu á fyrsta vinnudegi sínum. Því næst sækja allir nýir starfsmenn Actavis Akademíuna sem þar sem fram fer m.a. ítarleg kynning á öryggis-, heilsu- og umhverfismálefnum ásamt því að þeir vinna áhættumat í hópavinnu.