Ísland
Hér finnur þú úrval persónulegra sjónarhorna á söguhetjur Íslendingasagnanna sem lesendur um allan heim hafa sent okkur.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um hvernig þú getur sent þína hugmynd og vonandi unnið helgarferð til Evrópu.
Egill skáldbóndi og járnsmiður á Borg var á sinni tíð mikill friðsemdarmaður. Aldrei gerði hann flugu mein hérlendis.Í dag hefðu mál Egils fallið undir barnaverndarmál. Hann var skilinn 3ja ára án ...
Egill skáldbóndi og járnsmiður á Borg var á sinni tíð mikill friðsemdarmaður. Aldrei gerði hann flugu mein hérlendis.Í dag hefðu mál Egils fallið undir barnaverndarmál. Hann var skilinn 3ja ára án eftirlits heima á Borg þegar foreldrar hans fóru í veislu út á Álftanes. Hann átti fóstru sinni fjör að launa þegar faðir hans var næstum búinn að ganga af honum dauðum á íþróttamóti í Borgarfirði. Í dag hefði þetta komið Grími í fangelsi og Egill alist upp á fórsturheimili. Egill hefði sennilega gifst seint og leitað kvonfangs á einkamál.is., þar sem hann var óframfærinn og dulur enda var vinur hans Arinbjörn hans hjónabandsmiðlari. Í dag hefði Egill lagt fé sitt í ríkistryggð bréf eða auglýst: Ég Egill Skallagrímsson kaupi gull,því hann var fjáraflamaður og lét sér annt um sinn fjárgag og fjölskyldunnar. Sem öldungur hefði Egill keypt sig inn á Hrafnistu og gefið Samhjálp sitt silfur.