Sagnaarfur í nýju ljósi
Actavis er stoltur stuðningsaðili Íslands sem er heiðursgestur á bókamessunni í Frankfurt í október 2011. Íslenskar rætur fyrirtækisins eru okkur dýrmætar og við leggjum okkur fram um að vera verðugir fulltrúar þjóðarinnar erlendis.

Í tilefni bókamessunnar 2011 vildum við hjá Actavis setja hinn heimsfræga íslenska sagnaarf í nútímalegt samhengi. Ákveðið var að færa Íslendingasögurnar inn í 21. öldina á gamansaman og forvitnilegan hátt með aðstoð þriggja manna sem allir eru sérfræðingar á sínu sviði.

Hjálpaðu okkur að færa fornsögur Íslendinga inn í 21. öldina. Sendu okkur þína hugmynd um hvað einhver af tíu frægustu persónum sagnanna væri að gera árið 2011. Þú gætir unnið helgarferð að eigin vali til eins af áfangastöðum Icelandair í Evrópu.

Hér getur þú lesið stutta samantekt á efni þeirra sex Íslendingasagna sem söguhetjurnar tíu eru úr: Brennu-Njáls sögu, Laxdæla sögu, Fóstbræðra sögu, Egils sögu, Grettis sögu og Gísla sögu Súrssonar.
Think smart medicine
Actavis er þekkt fyrir að hugsa lengra og að koma til móts við þarfir viðskiptavina. Með því að ögra hefðbundinni hugsun finnum við snjallar leiðir í lyfjaframleiðslu - viðráðanlegt verð á hágæðalyfjum og nýjar lausnir sem mæta framtíðarþörfum viðskiptavina.
Think smart • Think Actavis