Gunnar á Hlíðarenda hefur átt ótrúlegan feril og sagt hefur verið að hann hafi náð því að verða bæði dáðasti og fyrirlitnasti maður landsins. Þessi glæsilegi afreksmaður komst á íþróttastyrk inn í einn virtasta háskóla Bandaríkjanna í Boston, tók þar fínt próf í viðskipta- og rekstrarfræðum og lék jafnframt í háskóladeildinni í körfubolta með liði skólans. Að loknu námi var hann keyptur yfir í NBA-deildina og náði þar að skína skært, varð einn af umtöluðustu og árangursríkustu leikmönnum deildarinnar, og þótt hann væri ekki jafn stór og mestu himnalengjur liðanna bætti hann það upp með ótrúlegum stökkkrafti.
Það var á allra vitorði að hann væri orðinn sterkefnaður og í framhaldinu gerðist hann umsvifamesti viðskiptajöfur þjóðarinnar; eignaðist fjöldann allan af fasteignum vítt og breitt ásamt verslunum og öðrum fyrirtækjum hér heima og erlendis. Hann barst mikið á og var nokkrum sinnum útnefndur „eftirsóttasti piparsveinn landsins“ – það var svo Hallgerður sem klófesti hann með tilheyrandi „brúðkaupi aldarinnar“ og hnattferð í endalausum lúxus.
Þegar á leið fóru menn að efast um að veldi hans stæði nógu styrkum fótum, og með efnahagshruninu í október 2008 fór eins og allir vita, veldið hrundi með miklu braki og óhemju tapi; og um viðskipti hans, sem allir dáðu svo mjög, er nú sagt að þau hafi verið tómar skýjaborgir. Hann missti allt, en hangir þó enn á sumarhúsi sínu í Fljótshlíðinni; er sagður dveljast þar einn og talinn þurfa að óttast um sig vegna reiði sem hann hefur kallað yfir sig.
Einar Kárason
Rithöfundur