Actavis think smart medicine

Ísland


Gísli Súrsson í nútímanum

Teikningar eftir:
Halldór Baldursson

Sjónarhorn skáldsins Einars Kárasonar

Gísli sinnir matvælaöryggi þjóðarinnar: hann er bóndi. Hann þótti efnismaður og eignaðist ágæta konu, Auði Vésteinsdóttur, en Gísla hefur aldrei búnast sérlega vel og sagt er að ef Auður sæi ekki um flest væru þau löngu uppflosnuð. Í stað þess að sinna bústörfum hefur Gísli aðallega einbeitt sér að þrætum og útistöðum við sína sveitunga, hann þykist jafnan hlunnfarinn og órétti beittur og hótar hefndum; sumir menn óttast hann því hann er vaskur maður og er grunaður um að sniglast í kringum bæi nábúa sinna um nætur, í óljósum tilgangi.

Þau Auður áttu ágætt bú í Dýrafirði en eftir að Gísli reyndi fyrir sér í refarækt (mönnum sýndist að það væru einu dýrin sem hann næði einhverjum tengslum við) urðu þau auðvitað gjaldþrota og misstu jörðina fóru þá á kot í afskekktum firði innúr Arnarfirði. Mörgum finnst illt að jafn ágæt kona og Auður sé bundin í basli með svo skrýtnum og einrænum manni sem Gísla, manni sem semur svo illa við annað fólk, en hún fylgir sínum manni í blíðu og stríðu - lagði meira að segja hendur á mann sem kom og bauð henni gull og græna skóga ef hún vildi svíkja Gísla en fylgja sér.

Eitt er þó ólíkt öðru í fari Gísla; hann hefur mjög gaman af að troða upp á skemmtunum og héraðsmótum; hefur búið til afkáralega grínfígúru sem hann kallar „Ingjaldsfíflið“ og vill helst alltaf taka einleik um hann á Þorrablótum og slíku, skemmtir sér greinilega vel meðan hann er á sviðinu, með tilheyrandi geiflum og fettum, þótt ýmsir aðrir séu minna hrifnir; fræg urðu ummæli eins sveitunga hans sem sagðist nú hafa séð Ingjaldsfíflið oftar og víðar en hann kærði sig um.

Einar Kárason
Rithöfundur

Á legubekk Óttars Guðmundssonar

Gísli er aðalpersóna sögunnar, svartur yfirlitum, stór og sterkur, mikill iðjumaður og hagur í höndum. Gísli þótti mikill vitmaður, þokkalegt skáld og hetja.

Í sögunni er hann margbrotinn persónuleiki sem fellur engan veginn að einni geðgreiningu. Margt í hegðun hans minnir á siðblindu en hann er öryggislaus og sífellt þjakaður af myrkfælni og einveru. Gísli drepur unnusta systur sinnar í upphafi sögunnar og síðar myrðir hann eiginmann hennar sem bendir til óeðlilegs sambands Gísla við systur sína. Hann hefur líka verið heillandi maður enda vinsæll og dáður af mörgum.

Gísli í nútímanum
Gísli hefði notið hagleika síns, handlagni og ágætrar greindar og náð langt sem byggingarmeistari og verktaki. Andfélagslegar kenndir hefðu þó getað gert honum lífið leitt og freistað hans til að fara á svig við reglur og lög samfélagsins og svíkja viðskiptamenn sína. Einhvern tíma ævinnar hefði samband hans við systur sína verið gert opinbert og valdið honum ómældum skaða. Hann hefði farið í einhvers konar útlegð í samfélaginu miðju, einangrast og dvalist í eigin heimi, bugaður af samviskubiti svo að sagan hefði endurtekið sig.

Auður kona hans hefði staðið með honum í gegnum þykkt og þunnt og lifað í skugga manns síns. Auður hefði aldrei látið bilbug á sér finna og elskað Gísla hvort heldur hann vissi ekki aura sinna tal eða barðist blóðugri baráttu við innheimtulögfræðinga og systur sína. Hún hefði staðið við hlið manns síns þrátt fyrir allar ásakanir systurinnar og sagt það lygi og rógburð. Auður hefði lært hjúkrun að loknum menntaskóla og getað farið að vinna á öldrunardeild þegar syrti í álinn hjá Gísla og hann hafði lokað sig af í íbúð þeirra hjóna.

Óttar Guðmundsson
Geðlæknir

  • til baka
  • prenta
  • senda