Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Starfsemin á Íslandi

Actavis sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja

Þróunarsvið Actavis heldur uppi öflugri starfsemiFyrirtækið starfar í meira en 40 löndum og er með höfuðstöðvar á Íslandi þar sem starfsemin er fjölþætt.
 
Skrifstofur fyrirtækisins eru til húsa í Hafnarfirði ásamt verksmiðju Actavis hf. Þróunar- og gæðamálum er einnig að mestu stýrt frá Hafnarfirði.

Starfsmenn á Íslandi eru yfir 500 með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Má þar nefna lyfjafræðinga, efnafræðinga, viðskiptafræðinga, verkfræðinga, hjúkrunarfræðinga, meinatækna, lyfjatækna, vélstjóra, mjólkurfræðinga, tungumálasérfræðinga, fólk með fjölbreytta iðnmenntun og almenna menntun. Starfsmenn Actavis eru í allt um 11 þúsund.

Þróun
Hlutverk þróunarsviðs Actavis er að halda uppi öflugri þróunarstarfsemi og þróa lyf sem standast ýtrustu kröfur þeirra markaða sem fyrirtækið vinnur á. Helstu verkefni eru verkefnaval, skipulagning og stýring þróunarverkefna, þróun lyfja, þróun mæliaðferða og gilding, geymsluþolsmælingar, samantekt og gerð skráningargagna og samskipti við viðskiptavini og yfirvöld.

Framleiðsla
Hlutverk framleiðslusviðs Actavis er að framleiða afurðir tímanlega með lægsta mögulega tilkostnaði miðað við gefið gæðastig. Framleiðslusvið sér meðal annars um greiningu framleiðslukostnaðar, rekstur framleiðslueininga, viðhald og rekstur húsnæðis, viðhald og val á tækjum og búnaði til framleiðslu.

Áætlanir
Hlutverk áætlanasviðs Actavis er gerð framleiðslutengdra áætlanagerðar. Áætlanasvið sér meðal annars um að greina framleiðslukostnað, umsjón með framleiðslu eða pökkun til þriðja aðila og umsjón með framleiðslustýringarkerfi.

Innkaup
Hlutverk innkaupasviðs Actavis er að skilgreina og halda utan um innkaupaferlið. Helstu verkefni fela meðal annars í sér innkaup og samningagerð við birgja vegna hráefna, önnur innkaup eins og á tækjabúnaði og rekstrarvörum, samningar um fraktflutninga og efnisþarfaútreikningar.

Fjármál
Hlutverk fjármálasviðs Actavis er að leita leiða til að hámarka afkomu fyrirtækisins og tryggja að stjórnendur hafi aðgang að réttum upplýsingum á réttum tíma til að auðvelda ákvarðanatöku. Helstu verkefni fela meðal annars í sér umsjón með uppgjörum, bókhaldi, áætlanagerð, launaútreikningum, fjárreiðum og öðru skrifstofuhaldi.

Gæðamál
Hlutverk gæðasviðs Actavis er að þróa og reka heilsteypt gæðakerfi sem nær til allrar starfsemi fyrirtækisins eins og þróunar, framleiðslu, hafa yfirumsjón með gæðakerfum fyrirtækisins og sjá um samhæfingu þeirra. Gæðakerfið nær til allra þátta framleiðslunnar og uppfyllir kröfur EU cGMP.

Markaðsmál
Hlutverk markaðssviðs Actavis er að tryggja að fyrirtækið sé leiðandi á íslenskum markaði. Helstu verkefni eru skilgreining markaðsstefnu, ímyndarvinna, samningagerð, mótun vöruúrvals, kynning á vörum og gerð sölu- og kynningaráætlana.

Starfsmannamál
Hlutverk starfsmannasviðs Actavis er að skapa spennandi og krefjandi starfsumhverfi fyrir hæft og metnaðarfullt starfsfólk. Helstu verkefni eru meðal annars ráðningar, móttaka nýliða, fræðsla og þjálfun, greining á fræðsluþörf, lausn ágreiningsmála og starfslokaviðtöl.



 

  • til baka
  • prenta
  • senda

Móðurfélagið

Actavis Group er móðurfélag Actavis á Íslandi.

Forstjóri Actavis Group er Sigurður Óli Ólafsson (upplýsingar á ensku)

Höfuðstöðvar á Íslandi Starfsemi í um 40 löndum Starfsemi í fimm heimsálfum Meira en 10.000 starfsmenn Yfir 500 starfsmenn á Íslandi

 

Vefur Actavis Group (á ensku)