Fréttatilkynningar
02 SEP 2011 / Samfélag
Actavis annað tveggja sem eftir standa
Tvö fyrirtæki standa nú eftir í kapphlaupinu um pólska lyfjafyrirtækið Polfa Warszawa. Það eru Actavis og pólska lyfjafyrirtækið Polpharma. Polfa, sem er í opinberri eigu, sendi út tilkynningu þessa efnis í fyrradag. Með þessu er Actavis einu skrefi nær því að kaupa fyrirtækið.Claudio Albrecht, forstjóri Actavis Group, segist aðspurður ekki í vafa um að Actavis sé besti kosturinn, ekki aðeins fyrir starfsmenn Polfa, heldur einnig pólska ríkið: „Pólska ríkisstjórnin þarf að fá besta hugsanlega verð fyrir eignina og einnig að tryggja áframhaldandi starfsemi þessa blómlega útflutningsfyrirtækis. Pólland hefur miklu meiri þýðingu fyrir Actavis, en pólska samkeppnisaðila." Polfa Warszawa er eitt stærsta lyfjafyrirtæki Póllands. Takist Actavis að kaupa það, yrði Pólland þriðji stærsti markaður Actavis samstæðunnar, á eftir þeim breska og bandaríska. Einnig mundi fylgja með í kaupunum ampúluverksmiðja, en Actavis hefur ekki yfir slíkri verksmiðju að ráða.