Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

30 JAN 2012 / Aðrar

 

Actavis og Bioton í samstarf um þróun og markaðssetningu á insúlíni.

Actavis og pólska fyrirtækið Bioton tilkynntu í dag að þau hefðu stofnað til formlegs samstarfs um þróun og skráningu á insúlíni, einnig svo kölluðum insúlínvirkum lyfjum (e.analogue insulins). Samkvæmt samningnum ber Bioton ábyrgð á þróun og framleiðslu á insúlíni en Actavis fær einkarétt til að markaðssetja það undir eigin vörumerki í Bandaríkjunum, Japan og Evrópu, einnig á Íslandi. Bæði fyrirtækin munu bjóða insúlín undir eigin nafni í Póllandi, sem er heimamarkaður Bioton.

Samstarfið var kynnt sameiginlega á blaðamannafundi í Varsjá í dag af Ryszard Krauze stjórnarformanni Bioton og Claudio Albrecht forstjóra og stjórnarformanni Actavis Group.

Vegna samstarfsins mun Actavis greiða Bioton samanlagt 55,5 milljónir evra. Þar af voru 22,25 milljónir greiddar við undirritun í dag en eftirstöðvarnar verða greiddar í samræmi við ákvæði í samningi um framvindu á skráningu á mannainsúlíni, ((framleitt með samrunaerfðatækni, (e. recombined human insulin)). Samkvæmt áætlun má búast við því að sala Actavis á insúlíni fyrstu sjö árin frá markaðssetningu fari yfir 1,5 milljarð evra. Actavis og Bioton munu deila kostnaði við þróun og skráningu til helminga og einnig ágóða.

Claudio Albrecht forstjóri Actavis telur að samstarfið muni auka stórlega verðmæti beggja fyrirtækja. „Bara mannainsúlín og insúlínvirku lyfin ættu að fara nærri því að auka verðmæti okkar um 900 milljónir evra. Og þökk sé samstarfssamningnum við Bioton, þá ættum við að verða meðal helstu fyrirtækja heims í framleiðslu á insúlíni.“

Stjórnarformaður Bioton S.A. Ryszard Krauze: „Samstarfið við Actavis mun hafa mikla þýðingu fyrir okkur hjá Bioton. Sameiginlega munum við kynna nútímaleg insúlín, þar með talin insúlínvirk lyf. Undanfarin tvö ár höfum við stöðugt verið að auka sölu á vörum okkar með samningum við stór fyrirtæki í lyfjageiranum. Má þar nefna Bayer HealthCare í Kína og GlaxoSmithKline í Rússlandi. Í dag bjóðum við enn eitt stórfyrirtækið velkomið í hóp samstarfsaðila.“

Sykursýki – heimsfaraldur 

Ný gögn frá Alþjóðasamtökum sykursjúkra (IDF) sýna að um 366 milljónir manna víða um heim eru með sykursýki. Vegna slæmrar fæðu og hreyfingaleysis, stefnir í að sykursýki verði að heimsfaraldri og búist er við að allt að 550 milljónir manna verði með sykursýki um 2030. Alþjóða heilbrigðisstofnunin spáir því að insúlín markaðurinn muni vaxa samhliða þessu, úr 14 milljörðum dala í 50 milljarða. Skoða ber samstarfið við Bioton sem viðleitni til að takast á við sykursýki með heildstæðum og markvissari hætti, segir Claudio Albrecht.

„Sýn okkar á sykursýki snýst um miklu meira en kynningu og sölu á mannainsúlíni og insúlínvirkum lyfjum“, segir hann. „Við hittum fyrir á markaði stóra keppinauta og við verðum að nýta til ýtrasta það samkeppnisforskot sem við klárlega höfum. Insúlínvörur frá Bioton hafa verið á markaði í yfir 10 ár og öryggi þeirra og virkni er framúrskarandi. Ennfremur er stór munur á okkur samanborið við frumlyfjaframleiðendurna, bætir Claudio Albrecht við, „...því við bjóðum þegar upp á mikið úrval af samheitalyfjum í töfluformi við sykursýki af tegund 2.“

 

  • til baka
  • prenta
  • senda