Nýr samstarfssamningur Actavis og knattspyrnudeildar FH var undirritaður síðasta dag nýliðins árs. Guðbjörg Edda undirritaði samninginn fyrir hönd Actavis en Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildarinnar fyrir hönd FH. Samningurinn er á sambærilegum nótum og fyrri samningur, en þó er ein veigamikil viðbót; FH-ingar skuldbinda sig til að berjast gegn notkun munntóbaks. Þetta er sama ákvæði og sett var í samstarfsamning Actavis við körfuknattleiksdeild Hauka sem undirritaður var í haust.
Samstarf Actavis og knattspyrnudeildar FH má rekja aftur til ársins 2001 þegar forveri Actavis, Delta gerði samning við knattspyrnudeildina. Á þeim tíma var FH nýliði í Landsímadeildinni, sem svo hét. Þá höfðu menn á orði að bjart væri yfir knattspyrnudeildinni og voru það svo sannarlega orð að sönnu. Sigurganga FH-inga hefur verið nær óslitin síðan.
