Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

01 APR 2011 / Vörufréttir

 

Actavis setur Risedronat á markað

Risedronat frá Actavis

Actavis í Hafnarfirði hefur þróað og sett samheitalyfið Risedronat á markað. Það er jafngilt frumlyfinu Optinate Septimum sem er fáanlegt á markaði hér á landi. Risedronat er notað við beinþynningu eftir tíðahvörf, til að draga úr hættu á beinbrotum í hrygg og í mjöðm. Hvað karlmenn áhrærir er það notað af þeim sem eiga á hættu að beinbrotna. Lyfið er lyfseðilsskylt og svo kallað E-merkt lyf og því greiða Sjúkratryggingar Íslands það að hluta. Risedronat fæst í 35 mg styrkleika,12 töflur í hverjum pakka.
  • til baka
  • prenta
  • senda