Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

02 JÚN 2010 / Samfélag

 

Hjólað í vinnuna: Actavis tók silfrið

Actavis tók silfrið!Heilsu og hvatningarátakið „Hjólað í vinnuna“ var haldið í áttunda skiptið dagana 5. til 25. maí sl. Actavis landaði þar öðru sætinu í hópi fyrirtækja með 400 - 799 starfsmenn á eftir Rio Tinto Alcan.

Þátttakan í ár var gríðarlega góð, en hún jókst um 17,5% á milli ára og tók 551 vinnustaður þátt í átakinu. Í ár voru hjólaðir 647.865 km sem jafngildir tæplega 500 hringjum í kringum landið. Við það sparaðist um 124 tonn af útblæstri CO2, 10,4 milljónir króna í bensín svo ekki sé minnst á hitaeiningafjöldann sem fuðraði upp.

Í heildina tóku 232 starfsmenn Actavis þátt í átakinu í 36 liðum og hjóluðu þeir samtals 21.362 km á móti 21.540 km Alcan.

Verðlaunaafhending fór fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum föstudaginn 28. maí.

  • til baka
  • prenta
  • senda