Starfsmenn markaðssviðs Actavis og fulltrúar geðdeilda LSH við afhendingu brospinnanna
Starfsmenn markaðssviðs Actavis gerðu góða ferð á geðdeild Landspítalans við Hringbraut fyrir helgi, en þá hófst söfnunarátakið „Brospinnar". Af því tilefni keypti Actavis 1400 brospinna, en áhugahópur um bættan aðbúnað á geðdeildum Landspítala stendur fyrir söfnuninni. Brospinnarnir voru gefnir starfsmönnum og viðskiptavinum Actavis. Geðraskanir hrjá um fjórðung Íslendinga á hverju ári.
Hluti þeirra þarf að leggjast inn á geðdeildir Landspítala. Margar deildirnar eru komnar til ára sinna og margt þarfnast endurnýjunar við. Nú leggur Actavis sitt af mörkum, en í gegnum árin hefur fyrirtækið oft lagt geðdeildinni lið.
Fyrir rúmu ári var starfsmaður á geðdeild að reyna að létta lund mjög veiks sjúklings. Starfsmaðurinn teiknaði, klippti og límdi broskarl á tunguspaða sem hann notaði sem pinna og skildi eftir á náttborði sjúklingsins. Þannig kviknaði hugmyndin að brospinnanum. Starfsfólki geðdeilda Landspítala er ljóst að á næstu árum verður lítið fé aflögu úr rekstri til þess að bæta aðbúnað sem mikil nauðsyn er á. Var því stofnað félagið "Brospinnar – áhugahópur um bættan aðbúnað á geðdeildum Landspítalans". Þessi áhugahópur leggur nú mikið á sig í sjálfboðavinnu til þess að bæta aðbúnaðinn.