
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi, var sæmd riddarakrossi, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag. Riddarakrossinn fær Guðbjörg Edda fyrir framlag til uppbyggingar atvinnulífs á heilbrigðissviði. Hér má lesa smá fróðleik um hina íslensku fálkaorðu, en hún er veitt tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní. 