Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

03 OKT 2011 / Samfélag

 

Forvarnardagurinn 2011 kynntur, Actavis styrkir

Forvarnardagurinn 2011 var kynntur í Breiðholtsskóla í morgun, að viðstöddum forseta Íslands og borgarstjóra og öllum þeim sem koma að deginum með einum eða öðrum hætti. Eins og undanfarin ár er Actavis aðal styrktaraðili Forvarnardags forseta Íslands, sem verður haldin í sjötta sinn 5. október. Forvarnardagurinn byggist á niðurstöðum íslenskra rannsókna sem sýna hvaða ráð duga vel til að koma í veg fyrir að ungmenni verði fíkniefnum að bráð.

Þar ber hæst þátttaka í íþrótta- og æskulýðsstarfi, samverustundir með fjölskyldunni og að fresta því sem lengst að neyta áfengis. Fram til þess hafa kannanir á neyslu verið bundnar 9. og 10. bekk. Í ár var ákveðið að bæta framhaldsskólanum við, því neysla vímuefna stóreykst þegar ungmenni yfirgefa grunnskóla. Í könnun sem Rannsóknir og greining hafa gert kemur í ljós að áfengisneysla eykst úr 9% í 43%, hlutfall þeirra sem hafa prófað hass fer úr 3% í 7% og þeirra sem hafa prófað maríjúana fer úr 8% í 12%. Þá fjölgar þeim sem reykja úr 5% í 9%.

Það er mat þeirra sem standa að Forvarnardeginum að hinn góði árangur sem náðst hefur í grunnskólum, ætti einnig að geta náðst í framhaldsskólum. Sem dæmi um þann góða árangur sem náðst hefur í 10. bekk má nefna að drykkja hefur minnkað úr 42% í 9% frá 1998, daglegar reykingar hafa farið úr 23% í 5% og hassneysla úr 17% í 3%.

Guðbjörg Edda, forstjóri Actavis

  • til baka
  • prenta
  • senda