Fréttatilkynningar
23 SEP 2011 / Samfélag
Forvarnardagurinn með stuðningi Actavis
Forvarnardagur 2011 verður haldinn miðvikudaginn 5. október. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands og Actavis er styrktaraðili. Bryddað er upp á þeirri nýbreytni í ár, að haldin er myndbandasamkeppni á Fésbókinni, þar sem krakkarnir geta sent inn myndbönd sem tengjast markmiði dagsins. Auk þess eru framhaldsskólarnir með í fyrsta sinn, en fram til þessa hefur Forvarnardagurinn eingöngu verið í 9. og 10. bekk. Rannsókn og greining hefur haft með höndum kannanir og skýrslugerð sem tengjast Forvarnardeginum. Fyrirtækið er rannsóknamiðstöð sem sérhæfir sig í rannsóknum á ungu fólki á Íslandi og erlendis og leiðir rannsóknaverkefni á þeim vettvangi í yfir 20 borgum í Evrópu. Meðal þess sem rannsóknir þeirra hafa sýnt er að:
- unglingar foreldra sem vita gjarnan hvar þeir eru á kvöldin og með hverjum, eru ólíklegri til að neyta fíkniefna en þeir unglingar sem eru undir minna eftirliti
- því meiri tíma sem foreldrar verja með unglingum því ólíklegra er að þeir leiðist út í fíkniefnaneyslu
- þeir unglingar sem telja sig auðveldlega geta fengið stuðning frá foreldrum sínum eru ólíklegri en aðrir til að leiðast inn á braut fíkniefnaneyslu
- unglingar sem stunda skipulagt íþrótta-og æskulýðsstarf undir leiðsögn ábyrgra aðila eru ólíklegri til að leiðast út í fíkniefnaneyslu eða aðra óæskilega hegðun
- því lengur sem unglingar sniðganga áfengi því ólíklegra er að þeir ánetjist fíkniefnum, hvert ár skiptir á máli