Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

14 OKT 2011 / Samfélag

 

Forstjóri Actavis verður forseti EGA

Guðbjörg Edda Eggertsdóttir forstjóri Actavis á Íslandi Guðbjörg Edda forstjóri Actavis á Íslandi og forseti EGA

Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi, er nýr forseti Samtaka evrópskra samheitalyfjafyrirtækja European Generic Medicines Association (EGA).

Þetta var tilkynnt formlega á stjórnarfundi samtakanna sem haldinn var í fyrradag, 12. október, í Varsjá í Póllandi. Fram kemur í tilkynningu frá samtökunum að Guðbjörg Edda hafi starfað við samheitalyfjaiðnaðinn í yfir 30 ár og fengist við fjölmörg verkefni sem samheitalyfjaiðnaðurinn hefur þurft að kljást við á leið sinni að verða mikilvægur hluti af heilbrigðiskerfinu um allan heim.

Einnig kemur fram að ferill Guðbjargar Eddu innan geirans sé einstæður en hann byggist á starfi hennar hjá Actavis og forverum þess. Edda tekur við keflinu af Didier Barret frá Mylan. Hún hefur verið í stjórn samtakanna frá 2006 og í framkvæmdastjórn í tvö ár.

 

  • til baka
  • prenta
  • senda