Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

19 OKT 2011 / Samfélag

 

Actavis og Haukar endurnýja samning – munntóbakið burt!

Haukar undirskriftSamúel Guðmundsson formaður körfuknattleiksdeildar og Benedikt Sigurðsson sviðsstjóri Samskiptasviðs Actavis takast í hendur að lokinni undirskrift.

Fyrir leik Hauka og Snæfells í m.fl. karla á dögunum var endurnýjaður samningur milli Actavis og körfuknattleiksdeildar Hauka. Actavis hefur undanfarin 7 ár verið aðalstyrktaraðili deildarinnar. Vegna góðs árangurs körfuknattleiksdeildarinnar ákvað Actavis að halda áfram að styðja uppbyggingu hennar en iðkendum hefur fjölgað mikið undanfarin misseri. Ákvæði er í samningnum um að körfuknattleiksdeildin beiti sér markvisst gegn notkun munntóbaks hjá leikmönnum, þjálfurum og iðkendum deildarinnar sem og að fræða iðkendur körfuknattleiks um skaðsemi munntóbaks. Haukar eru fyrsta félagið hér á landi sem skrifar undir slíka skuldbindingu í samningum við Actavis.
  • til baka
  • prenta
  • senda