Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

10 FEB 2012 / Samfélag

 

Medis í fyrsta sæti.

Ágúst tekur við verðlaununum fyrir hönd Medis

Medis er í fyrsta sæti 244 fyrirtækja á Íslandi sem uppfylla skilyrði sem Creditinfo setur til að fá vottun sem Framúrskarandi fyrirtæki 2011. Fjármálaráðherra, Oddný G. Harðardóttir mun afhenda Ágústi Helga Leóssyni fjármálastjóra Medis, viðurkenningu fyrir þennan frábæra árangur, í dag, 9. febrúar í Súlnasal Radisson Blu Hótel Sögu.

Medis er dótturfyrirtæki Actavis, en Actavis er einnig á listanum yfir þau 244 fyrirtæki sem uppfylla skilyrði Creditinfo.

Þetta er mikil viðurkenning, því alls eru 32.000 fyrirtæki skráð í Hlutafélagaskrá. Creditinfo vann greiningu sem sýnir hvaða íslensk fyrirtæki fá hæstu einkunn í styrk- og stöðugleikamati miðað við ýmsar lykiltölur og breytur. Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar:

Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2008-2010

Að vera með jákvætt áhættumat Creditinfo, CIP flokkar 1-3 (minni en 1% líkur á alvarlegum vanskilum) í janúar 2012

Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð, 2008-2010

Að ársniðurstaðan sé jákvæð þrjú ár í röð, 2008-2010

Eignir séu 80 milljónir kr. eða meira rekstrarárin 2008-2010

Að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2008-2010

Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá

Nánar um Framúrskarandi fyrirtæki, sjá hér: Creditinfo

  • til baka
  • prenta
  • senda