Actavis Group hefur undirritað bindandi viljayfirlýsingu við ástralska frumlyfjafyrirtækið QRxPharma Limited um markaðssetningu á frumlyfinu MoxDuo® IR í Bandaríkjunum. Undirbúningur markaðssetningar hefst þegar í stað, en reiknað er með að lyfið komi á bandaríska markaðinn á þriðja ársfjórðungi næsta árs. Samkvæmt því sem fram kemur í viljayfirlýsingunni, mun Actavis hafa einkaleyfi til að markaðssetja og selja MoxDuo á bandaríska markaðinum. Actavis ráðgerir að MoxDuo verði aðal verkjalyf félagsins í Bandaríkjunum en á þeim markaði hefur Actavis náð umtalsverðum árangri á undanförnum árum með lyfinu Kadian. Talið er að markaðurinn fyrir lyf við bráðaverkjum í Bandaríkjunum velti um 2,5 milljörðum dala á ári. Tilkynning um samstarfið virðist hafa farið vel í fjárfesta því hlutabréf í QRxPharma hækkaði stórum. Sjá nánar:
http://www.asx.com.au/asx/research/companyInfo.do?by=asxCode&asxCode=QRX