Fréttatilkynningar
06 SEP 2011 / Samfélag
Munntóbak, Actavis og samfélagið
Actavis hefur tekið upp þá stefnu, við gerð styrktarsamninga við íþróttafélög, að í þeim verði kveðið á um að félagið berjist gegn notkun munntóbaks, allra þeirra sem koma fram fyrir hönd félagsins. Nú þegar hefur verið gerður samningur um bann við munntóbaksnotkun, við körfuknattleiksdeild Hauka og samningar við FH, bæði handknattleiksdeild og knattspyrnudeild, eru í vinnslu. Allir hafa tekið munntóbaksákvæðinu vel og eru áfram um að losa íþróttir við undan munntóbaksnotkun sinna félagsmanna. Framtakið hefur vakið nokkra athygli og nú þegar hafa önnur íþróttafélög haft samband við Actavis og spurt hvort hægt sé að komast í samstarf sem byggist á banni við notkun munntóbaks. Engin afstaða hefur verið tekin til þess hvort önnur félög, en þau sem Actavis hefur samning við, verði einnig styrkt til góðra verka á þessum vettvangi. Og rétt að útiloka það ekki. Þess má geta að þessi afstaða Actavis, gagnvart munntóbakinu og tóbaki almennt, er í samræmi við stærsta styrktarverkefni Actavis mörg undanfarin ár, en það er Forvarnardagur forseta Íslands, sem haldinn er árlega.