Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

30 SEP 2011 / Samfélag

 

Stærsta markaðssetningin á árinu

Verksmiðja Actavis á Möltu hefur sent rúmlega 30 milljónir taflna af samheitalyfinu Olanzapine á markað í Evrópu. Lyfið fer til viðskiptavina Actavis og Medis, en Medis er dótturfyrirtæki Actavis, staðsett á Íslandi, og sér um sölu tilbúinna lyfja til annarra lyfjafyrirtækja sem selja lyf undir eigin vörumerki. Olanzapine er þróað af vísindamönnum Actavis í Hafnarfirði, en framleitt í verksmiðju Actavis á Möltu.

Olanzapine er samheitalyf Zyprexa® frá Eli Lilly og er notað við geðklofa og geðhvarfasýki. Samheitalyfið Olanzapine fer nú á markað þar sem einkaleyfi lyfsins eru að falla úr gildi. Þetta er stærsta einstaka markaðssetning Actavis og Medis á þessu ári. Olanzapine hefur verið á markaði á Íslandi frá 2008. Samheitalyf koma oft fyrr á markað á Íslandi vegna þessa að ekki er alltaf sótt um einkaleyfi fyrir frumlyfið á Íslandi, vegna smæð markaðarins. 

Frá verksmiðju Actavis á Möltu

  • til baka
  • prenta
  • senda