Actavis, hefur eignast allt hlutafé í PharmaPack International B.V. Kaupverðið er trúnaðarmál. PharmaPack hefur aðsetur í Zoetermeer í Hollandi og sérhæfir sig í pökkun á hefðbundnum lyfjum og líftæknilyfjum.
Fyrirtækið hefur umtalsverða reynslu í að uppfylla mismunandi kröfur fyrirtækja og landa um pökkun og hefur sinnt pökkun fyrir lyfjaiðnaðinn undanfarin 30 ár. „Ég hef þekkt til þessa góða félags í langan tíma og er verulega stoltur af því að forsvarsmenn þess ákváðu að velja Actavis sem nýja eigendur, því það var augljóst að þeim stóðu fleiri kostir til boða", segir Claudio Albrecht forstjóri Actavis. „Þessi kaup munu auka til muna sveigjanleikann á útboðsmörkuðum og gera okkur kleift að sinna minni pöntunum á lágmarksmagni fyrir smærri markaði."
Actavis kaupir umtalsvert af lyfjum af öðrum framleiðendum. „Afhendingartíminn er oft frá sex mánuðum og upp í níu, sem er allt of langt. Með kaupunum á PharmaPack International tekst okkur að stytta tímann um meira en helming," bætir Claudio Albrecht við. „Eitt af framtíðarhlutverkum hollenska félagsins verður pökkun á lyfjum frá verksmiðju okkar í Alathur á Indlandi. Annar kostur er, að með kaupunum lækkar flutningskostnaður umtalsvert. Í stuttu máli; kaupin munu auka samkeppnishæfni Actavis og hafa jákvæð áhrif á hreint veltufé."
Gerard Stevers, framkvæmdastjóri og eigandi PharmaPack International, segist fullviss að þessi mikilvæga og vel ígrundaða ákvörðun um að selja tryggi framtíð fyrirtækisins og starfsmanna þess. „PharmaPack mun njóta góðs af umfangsmikilli starfsemi Actavis um allan heim og hafa alla möguleika á að vaxa innan þessa alþjóðlega félags." Hann bætir við að Actavis hafi uppi áætlanir um mikinn vöxt í framtíðinni, og það muni einnig hafa afar góð áhrif á PharmaPack. „Actavis mun þurfa enn meiri afköst í pökkun og íhugar að stækka þessa starfsstöð."
Um PharmaPack International:
PharmaPack International hefur starfað í þjónustu við lyfjageirann í hart nær 30 ár. Það var sett á stofn 1983 og hóf starfsemi sem verktaki í pökkun lyfja í Rijswijk í Hollandi. Vöxtur PharmaPack var hraður og má einkum þakka það skilvirkum ferlum, þjónustu á góðu verði miðað við gæði og áreiðanleika í afhendingu. Fyrirtækið varð stærst á sínu sviði í Hollandi og eitt það stærsta í Evrópu.
Vegna stækkunar PharmaPack reyndist nauðsynlegt að flytja það til Zoetermeer 1998, þar sem rekstrarumhverfið var betra og mögulegt að bjóða enn betri þjónustu. PharmaPack leitast við að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna með „afgreiðslu-á-einum-stað" (e.one-stop-shop),þjónustu. Í henni felst allt frá sýnatöku úr búlkum (e.bulks) og geymslu, innkaupum á pökkunarefni, til þess að lyfið er komið í endanlegar pakkningar, tilbúið til afhendingar.