Fréttatilkynningar
23 ÁGÚ 2011 / Samfélag
Stórtónleikar til stuðnings Þú getur !
Stórtónleikar Þú getur ! Forvarna og fræðslusjóðs, verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn, 27. ágúst og hefjast þeir klukkan 20:40. Actavis er meðal stofnstyrktaraðila sjóðsins, ásamt Landsneti og Forvörnum ehf. Markmið sjóðsins er að styrkja til náms þá sem orðið hafa fyrir áföllum eða átt við geðræn vandamál að stríða, efla þjónustu við geðsjúka á sviði fræðslu og forvarna og draga úr fordómum gagnvart geðsjúkdómum. Þetta er í fjórða sinn sem styrktartónleikar af þessu tagi eru haldnir á vegum Þú getur ! Allir gefa listamennirnir vinnu sína og mikilvægt framlag þeirra hefur gert starf sjóðsins að veruleika. Meðal þeirra sem koma fram á laugardaginn eru: Kristján Jóhannsson, Margrét Eir, Páll Rósinkrans, Egill Ólafsson, Friðrik Ómar, Gissur Páll og margir fleiri. Frú Vigdís Finnbogadóttir er verndari tónleikanna.