Formaður Vinafélagsins Magnús Matthíasson afhendir styrkinn framkvæmdastjóra Rauða krossins, Kristjáni Sturlusyni
Svo virðist sem búið sé að tryggja starfsemi Vinjar, sem er heimili fyrir geðfatlaða við Hverfisgötu í Reykjavík. Þetta varð ljóst í gær, þegar fulltrúar Actavis komu í heimsókn og færðu vinafélagi Vinjar einnar milljóna króna styrk. Styrkurinn stoppaði stutt við hjá Vinafélaginu, því honum var komið rakleiðis áfram í hendur fulltrúa frá Rauða krossinum, sem sér um rekstur heimilisins.
Björk Vilhelmsdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar var einnig mætt með góð tíðindi; málefni heimilisins verða tekin föstum tökum og einnig mun vera búið að tryggja aðkomu velferðarráðuneytisins. Var þetta því mikill gleðidagur á Hverfisgötunni og margt um manninn, enda ekki skrítið, þar sem Hrafn Jökulsson, sá kunni skákfrömuður og mannvinur og einnig félagi í Vinafélaginu, var búinn að blása til skákmóts. Var teflt í hverju horni fram eftir degi.