Actavis think smart medicine

Ísland


Fréttatilkynningar

11 OKT 2011 / Samfélag

 

Actavis styrkir Ungmenni í Evrópu

Íslensk þekking í forvörnum kynnt erlendis

Aðferðafræði sem beitt hefur verið á Íslandi í rannsóknum á vímuefnaneyslu íslenskra ungmenna verður notuð í fjölmörgum borgum Evrópu á næstu misserum. Sá árangur sem náðst hefur í forvörnum á Íslandi hefur vakið alþjóðlega athygi, en neysla fíkniefna meðal íslenskra ungmenna hefur stórminnkað undanfarin áratug.

Niðurstöður rannsókna meðal unglinga í 10. bekk á Íslandi sýna að hlutfall unglinga sem varð drukkinn á undanförnum 30 dögum hefur lækkað úr 42% árið 1998 í aðeins 9% árið 2011. Hlutfall unglinga sem reykja daglega hefur lækkað úr 23% í 5%, og hlutfall þeirra sem hafa prófað hass fækkar úr 17% í 3%. Sama aðferðafræði er nú notuð erlendis í forvarnarverkefninu Ungmenni í Evrópu (Youth in Europe).

Það er af mörgum talið vera stærsta heilsueflingarverkefni sem snýr að unglingum og forvörnum í Evrópu. Verkefnið er unnið í samstarfi við evrópskar borgir og sér Reykjavíkurborg um verkefnastjórnun, en Rannsóknir og greining um rannsóknirnar. Markmið verkefnisins er að minnka líkurnar á notkun fíkniefna meðal ungs fólks.

Á blaðamannafundi í Frankfurt í dag kom fram að Actavis verður áfram fjárhagslegur bakhjarl Youth in Europe. Samningur um samstarf nær til ársins 2016. Fundurinn var haldinn að viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni forseta og Claudio Albrecht forstjóra Actavis Group. Forseti Íslands er verndari forvarnarverkefnisins. Actavis er einnig aðalstyrktaraðili Sögueyjunnar, sem heldur utan um heiðursþátttöku Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt.

 

  • til baka
  • prenta
  • senda