Frá vinstri: Guðný Ólafía Pálsdóttir, Gróa Ásgeirsdóttir frá átakinu Á allra vörum, Erna Magnúsdóttir forstöðumaður Ljóssins , Ólöf Þórhallsdóttir markaðsstjóri Actavis og Sigrún Tryggvadóttir sölufulltrúi hjá Actavis.
Söfnunarátakið Á allra vörum er hafið, en í ár er safnað fyrir Ljósið. Actavis styrkir verkefnið með veglegum hætti, og jafnframt starfsemi Ljóssins sérstaklega.
Með styrknum vill Actavis stuðla að því að endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðin Ljósið geti áfram veitt þeim stuðning sem eru að ná sér eftir krabbamein, sem og aðstandendum þeirra.
Á þessu ári á Ljósið fimm ára afmæli og er ætlunin að safna fyrir húsnæði til að starfsemin fái öruggan samastað.
Aðalsöfnunin er í opinni dagskrá á Skjá 1 og er í boði Actavis.