Undirskrift í höfuðstöðvum Actavis í Hafnarfirði. Lúðvík Arnarson, varaformaður knattspyrnudeildar FH og Sigurður Óli Ólafsson forstjóri Actavis Group.
Actavis verður áfram aðalstyrktaraðili Íslandsmeistara FH í knattspyrnu.
Sigurður Óli Ólafsson, forstjóri Actavis Group, og Lúðvík Arnarson, varaformaður knattspyrnudeildar FH, undirrituðu nýjan samstarfssamning í höfuðstöðvum Actavis í Hafnarfirði.
Samstarf fyrirtækisins við FH hófst eftir að liðið vann sér sæti í efstu deild haustið 2000, fyrstu árin undir merkjum lyfjafyrirtækisins Delta, forvera Actavis, en FH hefur spilað með merki Actavis á búningnum síðan vorið 2004.
FH varð í haust Íslandsmeistari í knattspyrnu karla í fimmta sinn á sex árum, en félagið vann einnig Íslandsmeistaratitilinn 2008, 2006, 2005 og 2004. FH-ingar urðu jafnframt bikarmeistarar 2007.
Actavis leggur metnað sinn í að taka þátt í samfélagslegum verkefnum á starfssvæðum sínum. Með þátttöku í þeim vill Actavis láta gott af sér leiða á sviðum sem snerta velferð barna, heilbrigði, þekkingarsköpun, íþróttir og menningarsamskipti landanna sem félagið starfar í.