Verðlaunaafhending í flokki stærri fyrirtækja - fulltrúar Actavis lengst til hægri með viðurkenningarnar.
Actavis sigraði í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins 2009, í flokki stærri fyrirtækja (yfir 400 starfsmenn). Tæplega 9.300 einstaklingar tóku þátt í vinnustaðakeppninni að þessu sinni og varð Orkuveita Reykjavíkur í öðru sæti stærri fyrirtækja og Alcan í því þriðja.
Meira en 30 lið frá Actavis skráðu sig til keppninnar, flest með 9-10 þátttakendur innanborðs. Rúmlega helmingur starfsfólks Actavis á Íslandi tók þátt í keppninni.
Þetta er í fyrsta sinn sem Actavis tekur þátt í Heilsuhlaupinu. Í tengslum við það var haldin Heilsuvika í fyrirtækinu, sem mæltist vel fyrir meðal starfsfólks. Þar var lögð áhersla á heilbrigðan lífstík, næringu, streitustjórnun og líðan, auk hreyfingar.
Það var liðið Pericarpium aurantii (appelsínubörkur) sem sigraði í innanhússkeppni Actavis, með 204 daga og 20.765 mínútur. Pumpkins urðu í öðru sæti (197, 19.540) og Glóaldinin í því þriðja (195, 16,835). Nöfn liðanna þriggja, og margra annarra í innanhússkeppninni, vísa í appelsínugula litinn sem einkennir Actavis og tengjast jafnframt árlegri hópeflisvinnu innan félagsins.