Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

23 DES 2009 / Samfélag

 

Actavis veitir styrki á aðventu

Actavis veitir styrki á aðventunni 2009 - Hjartadeild LSHGjafirnar afhentar á hjartadeild. Aftari röð: Guðmundur Þorgeirsson hjartasérfræðingur og Prófessor, Guðjón Karlsson hjartasérfræðingur, Uggi Agnarsson hjartasérfræðingur og Gestur Þorgeirsson yfirlæknir hjartadeildar LSH.Fremri röð: Lilja Dögg Stefánsdóttir starfandi sölu-og markaðsstjóri Actavis, Inga Björnsdóttir aðstoðardeildarstjóri hjartadeildar, Kristín Sigurðardóttir deildarstjóri hjartadeildar, Guðrún Reimarsdóttir lífeindafræðingur og Dagný Baldvinsdóttir verkefnastjóri B.Braun.

Actavis hefur styrkt ýmis félagasamtök og stofnanir á aðventunni, þar á meðal geðdeild og barnadeild Landsspítalans, verkefnasjóð Krafts, og Rauða kross Íslands vegna jólaúthlutunar á matvælum og fatnaði.

Rauði krossinn vinnur að úthlutuninni í samstarfi við mæðrastyrksnefndir, Hjálparstofnun kirkjunnar og fleiri aðila um allt land. Þá lét starfsmannafélag Actavis andvirði jólagjafa starfsfólks renna til góðgerðarmála að þessu sinni.

Skömmu fyrir jól afhenti Actavis hjartadeild Landsspítalans tvær sprautudælur frá B.Braun og tvö King of hearts hjartsláttarupptökutæki.

Það var Lilja Dögg Stefánsdóttir starfandi sölu- og markaðsstjóri Actavis á Íslandi sem afhenti gjafirnar á hjartadeildinni fyrir hönd Actavis. Sagði hún við það tækifæri að það væri von starfsfólks Actavis að gjöfin kæmi sjúklingum, aðstandendum og starfsfólki hjartadeildanna að góðum notum.

  • til baka
  • prenta
  • senda