Actavis hefur selt dreifingarfyrirtækið Higia EAD í Búlgaríu. Kaupendur eru þarlendir fjárfestar, Rossitsa Veselinova Velikova.
Actavis einbeitir sér að lykilstarfsemi félagsins, sem er þróun, framleiðsla og sala samheitalyfja. Ákvörðunin um söluna er í takt við þessa stefnu fyrirtækisins. Actavis mun áfram eiga samstarf við Higia og önnur dreifingarfyrirtæki fyrir lyf í Búlgaríu.