Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

01 FEB 2010 / Aðrar

 

Actavis selur Norgesplaster

Actavis hefur selt Norgesplaster, verksmiðju í Vennesla í Noregi sem framleiðir plástra og íþróttateip. Kaupendurnir eru norskir fjárfestar. Kaupverðið er ekki gefið upp.

Actavis eignaðist Norgesplaster með kaupunum á samheitalyfjasviði Alpharma í desember 2005. Sala verksmiðjunnar er liður í áframhaldandi samþættingu á starfsemi Actavis Group, en félagið einbeitir sér að kjarnastarfsemi sem tengist framleiðslu og sölu samheitalyfja. Starfsemi sölu- og markaðssviðs Actavis í Osló verður óbreytt.

Núverandi starfsmenn Norgesplaster, 36 manns, munu áfram starfa hjá verksmiðjunni.

Vefur Norgesplaster (á norsku)

  • til baka
  • prenta
  • senda