Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

05 FEB 2010 / Samfélag

 

Actavis endurnýjar samning við Sjónarhól

Actavis verður áfram bakhjarl Sjónarhóls, ráðgjafarmiðstöðvar fyrir foreldra barna með sérþarfir. Fulltrúar Sjónarhóls og bakhjarlanna staðfestu áframhaldandi samstarf með undirritun fyrirheita.

Auk Actavis endurnýjuðu Kvenfélagið Hringurinn og Landsbankinn samstarfið, en þessir aðilar hafa verið bakhjarlar Sjónarhóls frá upphafi.

Sigurður Óli Ólafsson undirritar styrktarsamning fyrir hönd Actavis

Á Sjónarhóli starfa nú tveir foreldraráðgjafar auk þess sem framkvæmdastjóri sinnir ráðgjöf að hluta. Ráðgjafar Sjónarhóls veita foreldrum leiðsögn og stuðning, það er nógu alvarlegt að eiga barn með sérþarfir þó ekki þurfi jafnframt að eyða kröftum í að leita og berjast fyrir eðlilegum og sjálfsögðum réttindum.

Mikil áhersla er lögð á að þjónustan sé aðgengileg og er ráðgjöf á vegum Sjónarhóls veitt endurgjaldslaust. Þjónusta Sjónarhóls er ætluð öllum óháð aldri barnsins, einnig þeim sem eiga uppkomin börn. Það nægir að foreldrar/fjölskyldan hafi áhyggjur af líðan eða þroska barnsins til að fá ráðgjöf. Til að panta tíma hjá ráðgjafa þarf hvorki að liggja fyrir greining eða tilvísun frá fagaðilum.

Stuðningur bakhjarlanna og ríkisstjórnarinnar ásamt fé sem safnaðist í landssöfnuninni „Fyrir sérstök börn til betra lífs“ haustið 2003 gerði stofnun Sjónarhóls mögulega. Frá því Sjónarhóll opnaði haustið 2004 hafa vel á annað þúsund foreldrar leitað ráðgjafar þar vegna barna sinna.

  • til baka
  • prenta
  • senda