Fréttatilkynningar
22 DES 2009 / Vörufréttir
Actavis fyrst á markað í Frakklandi og fleiri Evrópulöndum
Actavis hefur sett samheitalyfið Valaciclovir á markað í Frakklandi og fleiri Evrópulöndum. Lyfið er notað við veirusýkingum og er eitt söluhæsta lyfið sem missir einkaleyfisvernd í Frakklandi á árinu 2009. Valaciclovir Actavis kemur á markað á Íslandi á næstu dögum.
Samheitalyfið Valaciclovir verður selt í Frakklandi bæði undir merkjum Actavis og merkjum viðskiptavina Medis, sem er sölusvið Actavis til þriðja aðila. Lyfið fór einnig á markað í Bretlandi og í Noregi undir merkjum Actavis, en viðskiptavinir Medis markaðssetja það á Ítalíu. Einkaleyfi frumlyfsins rann út 20.-21. desember í löndunum sem um ræðir. Valaciclovir Actavis kemur á markað í öðrum Evrópulöndum á næstunni.
Lyfið er samheitalyf frumlyfsins Valtrex / Zelitrex frá GlaxoSmithKline. Það er notað við sýkingum af völdum herpesveira.
Valaciclovir Actavis er þróað og framleitt hjá Actavis í Hafnarfirði.