Fréttatilkynningar
06 JÚL 2011 / Vörufréttir
Nýtt hjartalyf frá Actavis
Actavis hefur sett á markað nýtt samheitalyf sem nefnist Carvedilol Actavis og inniheldur virka efnið carvedílól. Lyfið er notað við háþrýstingi, langvinnri stöðugri hjartaöng og sem viðbótarmeðferð við miðlungi alvarlegri til alvarlegri, stöðugri hjartabilun. Lyfið er framleitt í Þýskalandi og hefur verið þar á markaði um árabil. Vegna óska frá innlendum sérfræðingum hefur Actavis nú ákveðið að markaðssetja lyfið hér á landi. Lyfið verður fáanlegt í tveimur styrkleikum til að byrja með, 12,5 mg og 25 mg töflum, en 6,25 mg töflur eru væntanlegar síðar á árinu. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands er samkvæmt B-merkingu. Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Actavis (
www.actavis.is) og heimasíðu Lyfjastofnunar (
www.serlyfjaskra.is).