Fréttatilkynningar
29 JÚL 2010 / Vörufréttir
Clopidogrel, nýtt samheitalyf frá Actavis á Íslandsmarkað
Actavis hefur sett á markað á Íslandi blóðlyfið Clopidogrel Actavis. Það er samheitalyf sem ætlað er til að koma í veg fyrir æðastíflur. Þetta er sjöunda nýja samheitalyfið sem Actavis markaðssetur á Íslandi á árinu 2010.
Lyfið Clopidogrel er tekið til að koma í veg fyrir að blóðkökkur myndist í kölkuðum æðum, sem getur m.a. valdið heilablóðfalli eða hjartaáfalli.
Clopidogrel Actavis er jafngilt (bioequivalent) frumlyfinu Plavix® sem er frá frumlyfjafyrirtækjunum Bristol-Myers Squibb og Sanofi Pharma.
Lyfið er lyfseðilsskylt. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 75 mg af klópídógreli og eru 100 stk í pakka.
Clopidogrel Actavis var þróað hjá Actavis á Íslandi og er framleitt hjá Actavis á Möltu. Það er sjöunda nýja samheitalyfið sem Actavis markaðssetur á Íslandi á árinu. Hin eru m.a. geðlyfið Esopram, krabbameinslyfið Paclitaxel og veirulyfið Valaciclovir.