Fréttatilkynningar
10 MAÍ 2010 / Vörufréttir
Nýtt þunglyndislyf frá Actavis á markað á Íslandi
Actavis hefur hafið sölu á samheitalyfinu Esopram.
Lyfið er jafngilt frumlyfinu Cipralex® frá lyfjafyrirtækinu Lundbeck.
Esopram er þunglyndislyf í flokki sérhæfðra serótónín endurupptöku hemla og er ætlað til meðferðar við alvarlegum þunglyndislotum, felmtursröskun með eða án víðáttufælni, félagsfælni og þráhyggju-árátturöskun.
Samheitalyfið Esopram frá Actavis er framleitt á Möltu. Lyfið er lyfseðilsskylt.