FH varð bikarmeistari í knattspyrnu karla í annað sinn með 4-0 sigri á KR á Laugardalsvelli 14. ágúst. FH hefur nú lyft bikar sjö ár í röð, en félagið varð Íslandsmeistari karla 2004, 2005, 2006, 2008 og 2009 og bikarmeistari 2007 og 2010.

Matthías Vilhjálmsson skoraði tvö fyrstu mörk FH úr vítaspyrnum í fyrri hálfleik, en Atli Viðar Björnsson og Atli Guðnason gerðu sitt markið hvor í síðari hálfleiknum.

Sigur FH á KR er sá næst stærsti í úrslitaleik bikarkeppninnar frá upphafi, en Fram sigraði Víði úr Garði 5-0 árið 1987.
Einu sinni áður hefur unnist fjögurra marka sigur í úrslitaleik, en það var árið 1964 þegar KR sigraði ÍA 4-0.
Actavis hefur um árabil verið aðalstyrktaraðili FH.
