Verðlaunahafarnir, Logi Sigursveinsson, Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík, Anna Þuríður Sigurðardóttir Grunnskóla Bolungarvíkur og Anna Margrét Arnarsdóttir frá Nesskóla í Neskaupsstað, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands og frú Dorrit Moussaieff.
Sigurvegarar í ratleik Forvarnardagsins 2009 fengu verðlaun sín afhent á Bessastöðum laugardaginn 7. nóvember. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin.
Forvarnardagurinn var haldinn í grunnskólum landsins í fjórða sinn þann 30. september.
Nemendur í 9. bekk taka virkan þátt í verkefnum dagsins. Meðal annars vinna nemendur í hópum sem skila niðurstöðum á vef Forvarnardagsins. Þá býðst öllum 9. bekkingum að taka þátt í net-ratleik.
Sigurvegararnir í leiknum að þessu sinni eru Logi Sigursveinsson, Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík, Anna Þuríður Sigurðardóttir Grunnskóla Bolungarvíkur og Anna Margrét Arnarsdóttir frá Nesskóla í Neskaupsstað.
Íslenskar rannsóknir sýna að þeir unglingar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna.
Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum.
Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna.
Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóðlega eftirtekt.

Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af Actavis.
Vefur forvarnardagsins