Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

28 SEP 2009 / Samfélag

 

Forvarnardagurinn haldinn í fjórða sinn 30. september

Blaðamannafundur vegna Forvarnardagsins 2009 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, kynnir dagskrá Forvarnardagsins 2009 á blaðamannafundi í Háteigsskóla.

Forvarnardagurinn verður haldinn í grunnskólum um allt land miðvikudaginn 30. september næstkomandi.

Forvarnardagurinn, sem nú er haldinn í fjórða sinn, er byggður á niðurstöðum íslenskra rannsókna sem sýna hvaða ráð duga best til að koma í veg fyrir að ungmenni verði fíkniefnum að bráð. Þar ber hæst þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi, samverustundir með fjölskyldunni og að fresta sem lengst að neyta áfengis.

Á Forvarnardaginn fara fram umræður nemenda í grunnskólunum um hugmyndir þeirra og tillögur varðandi nýjungar og breytingar á æskulýðs- og íþróttastarfi, fjölskyldulífi og öðrum þeim þáttum sem eflt geta forvarnir. Reynslan hefur sýnt mikla hugmyndaauðgi nemenda í slíkum samræðum.

Allar hugmyndir og tillögur nemenda verða teknar saman og settar í skýrslu sem birt er á vefsíðu forvarnardagsins.

Þá gefst nemendum kostur á að taka þátt í ratleik á vefsíðum íþrótta- og ungmennasamtaka og eru þar verðlaun í boði.

Undanfarin 10 ár hefur markvisst forvarnarstarf verið unnið á
Íslandi. Það starf hefur skilað sér í því að vímuefnaneysla íslenskra
ungmenna er með því lægsta sem þekkist.

Forvarnardagurinn - Guðbjörg Edda Eggertsdóttir aðstoðarforstjóri Actavis

Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands. Aðstandendur Forvarnardagsins, sem skipulagður er með stuðningi Actavis, eru:

Bandalag íslenskra skáta


Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands


Rannsóknir og greining í Háskólanum í Reykjavík


Reykjavíkurborg


Samband íslenskra sveitarfélaga


Ungmennafélag Íslands

Vefur Forvarnardagsins er www.forvarnardagur.is

 

  • til baka
  • prenta
  • senda