Hafnarfjarðarliðið Haukar tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla annað árið í röð með sigri á Val í oddaleik.
Þetta er í 8. sinn á ellefu árum sem Haukar verða Íslandsmeistarar í handknattleik karla.
Haukaliðið vann alla titla sem boði voru á keppnistímabilinu, undir stjórn Arons Kristjánssonar þjálfara. Auk þess að verða Íslandsmeistarar eru Haukar bikarmeistarar, deildarmeistarar og deildarbikarmeistarar.
Actavis hefur undanfarin ár verið meðal þeirra fyrirtækja sem styrkja Hauka.