Hildur Arnars Ólafsdóttir, starfsmannastjóri Actavis hf. og Leó Sigurðsson öryggis-, heilsu- og umhverfisstjóri Actavis hf. tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Actavis á Íslandi.
Actavis fékk þann 25. mars afhenta sérstaka heiðursviðurkenningu sem góð fyrirmynd í heilsueflingu á vinnustöðum.
Þá var tilkynnt að Actavis yrði fulltrúi Íslands á ráðstefnu um heilsueflingu á vinnustöðum sem verður haldin á Ítalíu í apríl.
Auk Actavis fengu þrír vinnustaðir sérstaka viðurkenningu í móttöku sem haldin var í húsakynnum Háskóla Íslands í Árnagarði. Þetta eru Íslandspóstur, Snælandsskóli í Kópavogi og leikskólinn Lyngholt í Fjarðarbyggð.
Fulltrúar vinnustaða sem tóku þátt í verkefninu Heil og sæl í vinnunni, sem Vinnueftirlitið og Lýðheilsustöð stóðu að, og skiluðu inn upplýsingum um vinnustaðinn, fengu einnig viðurkenningar fyrir þátttökuna.
Í máli Ásu G. Ásgeirsdóttur, verkefnisstjóra verkefnisins Heil og sæl í vinnunni, kom fram að Actavis væri fyrirmyndardæmi um stóran vinnustað sem ynni að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsueflingu á kerfisbundinn máta.
Verkefnið Heil og sæl í vinnunni er unnið í samvinnu við önnur Evrópulönd og ber heitið Move Europe á ensku.
Markmið verkefnisins er að auka vitund innan vinnustaða á mikilvægi þess að efla heilsu og líðan starfsmanna ásamt því að bæta vinnuskipulag og vinnuumhverfi.
Heilsuteymi hjá Actavis
Hjá Actavis starfar m.a. heilsuteymi með þrjá teymishópa innanborðs; teymi um streitu og líðan, teymi um hreyfingu og næringu og teymi tóbaks- og áfengisvarnir.
Stefna teymis um streitu og líðan er sú að öllum starfsmönnum líði vel í vinnunni og að í daglegum störfum þeirra sé haft í huga eðlilegt jafnvægi milli starfsmanna sem einstaklinga, vinnustaðarins og skipulags. Þannig er möguleiki á að bæta aðstöðu starfsmanna, lágmarka streitu og stuðla að betri líðan.
Stefna teymis um hreyfingu og næringu felst í að leggja áherslu á góðan og heilsusamlegan mat á vinnustaðnum og að styðja og hvetja starfsmenn til að huga að andlegri og líkamlegri velferð sinni. Þetta er gert m.a. með því að bjóða upp á líkamsræktarstöðu í húsnæði Actavis.
Stefna teymis um tóbaks- og áfengisvarnir er fólgin í því að hvetja og styðja starfsmenn til að stunda heilsusamlegt líferni. Actavis er reyklaus vinnustaður og styður starfsmenn í að hætta tóbaksnotkun. Stuðningskerfið byggir einnig á því að bjóða starfsmönnum, sem hafa náð að hætta að reykja, upp á að verða sjálfboðaliðar í að styðja aðra að hætta að reykja.
Vefur heilsueflingar á vinnustöðum
Vefur Lýðheilsustöðvar
Vefur Vinnueftirlitsins