Fullt var út úr dyrum á opnunarhátíð heilsu- og hvatningarátaksins "Hjólað í vinnuna" í mötuneyti Actavis fimmtudaginn 6 maí.
Starfsfólki Actavis var boðið í morgunmat, og hvöttu þeir Jón Gunnar Jónsson framkvæmdastjóri Actavis á Íslandi og Leó Sigurðsson öryggis-, heilsu- og umhverfisstjóri hópinn til dáða í átakinu sem er að hefjast.
Sérstakri yfirskrift átaksins hjá Actavis “Hjólað í vinnuna – í vinnuna á eigin orku” er ætlað að vekja athygli á því að allir geta tekið þátt svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að koma sér til og frá vinnu, þ.e. hjóla, skokka, ganga, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem nýta almenningssamgöngur geta einnig verið með, en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð.
Hjólaátakið hófst formlega morguninn áður með opnunarhátíð verkefnisins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þar voru borgarstjóri og ráðherrar heilbrigðismála, umhverfismála og samgöngumála viðstaddir. Þar voru einnig mættir fulltrúar nokkurra fyrirtækja og þar á meðal fulltrúar Actavis á Íslandi.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu “Hjólað í vinnuna”, sem hófst árið 2003. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Vefur: Hjólað í vinnuna