Actavis á Íslandi fékk í dag afhent viðurkenningarskjal til staðfestingar á ISO 14001 vottun umhverfisstjórnunarkerfis fyrirtækins.
Umhverfisstjórnunarkerfið hefur þegar verið innleitt eftir aðeins eins árs innleiðingarferli. Actavis er áttunda fyrirtækið sem fær ISO 14001 vottun á Íslandi.
Það var ráðgjafarfyrirtækið SGS (Société Générale de Surveillance) United Kingdom Ltd sem gerði úttekt á umhverfisstjórnunarkerfinu.
ISO 14001 er alþjóðlegur staðall þar sem tilgreindar eru kröfur sem gera eiga fyrirtækjum kleift að þróa og innleiða stefnu og markmið í umhverfismálum með hliðsjón af umhverfisþáttum, lagalegum kröfum svo og öðrum þeim kröfum sem við kunna að eiga. Þegar fyrirtækin hafa uppfyllt öll skilyrði staðalsins er hægt að öðlast vottun óháðs aðila á umhverfisstjórnunarkerfinu í samræmi við kröfur ISO 14001.
Í tilefni þessa mikilvæga áfanga var Siv Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra og Lúðvík Geirssyni, bæjarstjóra í Hafnarfirði, boðið í formlega heimsókn til Actavis og þeim kynnt starfsemi fyrirtækisins.
„Við erum afar stolt af því að vera fyrirtæki sem kemur fram á ábyrgan hátt gagnvart umhverfinu og hefur einsett sér að vera í fararbroddi í umhverfis- og öryggismálum,“ segir Jón Gunnar Jónsson, framkvæmdastjóri Actavis á Íslandi. „Við teljum að ávinningur umhverfisstjórnunar sé mikill og muni koma fram í aukinni hagkvæmni, betri stjórn á umhverfisþáttum og áhættu í rekstri samfara jákvæðari ímynd og meiri samkeppnishæfni.“