Fréttatilkynningar
14 SEP 2009 / Vörufréttir
Nýtt magalyf frá Actavis komið á Íslandsmarkað
Actavis á Íslandi hefur hafið sölu á samheitalyfinu Lanser. Lyfið er meðal annars ætlað til meðferðar við magasári og bakflæði.
Lanser, sem inniheldur virka efnið lansoprazol, tilheyrir flokki prótónpumpuhemla. Lanser fæst í sýruþolnum hylkjum, 30mg, 98 stk. Lyfið er lyfseðilsskylt
Lanser er jafngilt (bioequivalent) frumlyfinu Lanzo en er mun ódýrara samkvæmt viðmiðunarverðskrá.