Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Fréttatilkynningar

25 JAN 2010 / Vörufréttir

 

Hjartalyfið Lercanidipine frá Actavis á markað í Evrópu á fyrsta degi

Actavis hefur markaðssett samheitalyfið Lercanidipine í fimm Evrópulöndum. Lyfið er einkum notað við háum blóðþrýstingi.

Lercanidipine fór á markað undir merkjum Actavis í Bretlandi og Frakklandi strax eftir að einkaleyfin féllu á 20. og 21. janúar. Viðskiptavinir Medis, sölusviðs Actavis sem selur lyf til annarra lyfjafyrirtækja, settu lyfið á markað í Frakklandi, Bretlandi, Hollandi, Belgíu og á Ítalíu.

Lercanidipine Actavis fer á markað í fleiri Evrópulöndum þegar einkaleyfi falla úr gildi á næstu vikum.

Lercanidipine töflur eru notaðar við háum blóðþrýstingi og eru samheitalyf frumlyfjanna Zanidip og Lercadip.

Frumlyfin seldust fyrir 290 milljónir evra á 12 mánaða tímabili til loka september 2009. Þar af nam salan í Frakklandi og Bretlandi 130 milljónum evra á sama tíma, skv. tölum frá IMS health.

Samheitalyfið Lercanidipine var þróað hjá Actavis í Hafnarfirði og framleitt hjá Actavis á Möltu.

  • til baka
  • prenta
  • senda