Góð mæting var á lokahátíð og verðlaunaafhendingu Lífshlaupsins, þar sem þeir Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ og Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, ávörpuðu gesti og veittu verðlaun. Gunnar Beinteinsson, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Actavis, tók við verðlaununum ásamt fleiri fulltrúum fyrirtækisins.
Actavis fékk gullverðlaun í fyrirtækjakeppni Lífshlaupsins annað árið í röð. Actavis sigraði með nokkrum yfirburðum í flokki fyrirtækja með 400 og fleiri starfsmenn. Sjúkrahúsið á Akureyri varð í öðru sæti og Orkuveita Reykjavíkur í þriðja.
Lífshlaupið stóð í þrjár vikur, eða 21 dag. Alls tóku 45 lið þátt í keppninni hjá Actavis, 355 einstaklingar. Samtals hreyfði hópurinn sig í 708 mínútur, sem samsvarar því að hver einasti starfsmaður Actavis (af um 580 starfsmönnum á Íslandi) hreyfi sig rúmlega þrisvar í viku í tæpar 34 mínútur á dag.
Ganga var algengasta hreyfingin hjá starfsfólki Actavis í Lífshlaupinu að þessu sinni (39%). Margir fóru líka í ræktina (25%), en starfsfólk Actavis býr svo vel að hafa líkamsræktarstöð World Class í húsnæðinu. Þá fóru margir á skíði eða út að hlaupa. Á listanum eru einnig hjólreiðar, jóga, fjallganga, dans, knattspyrna og ýmis önnur form hreyfingar.
Heildarfjöldi þátttakenda í Lífshlaupinu jókst um 44% frá fyrra ári, í 13.337. Alls tóku 9.056 einstaklingar þátt í vinnustaðakeppni að þessu sinni, frá 394 fyrirtækjum.
Úrslit í flokki fyrirtækja með 400 og fleiri starfsmenn:
1. Actavis á Íslandi 9,25 dagar, 708 mínútur
2. Sjúkrahúsið á Akureyri 3,78 dagar, 258 mínútur
3. Orkuveita Reykjavíkur 3,47 dagar, 256 mínútur
Hörð keppni var milli liða innan Actavis. Fjögur lið fengu afhent fyrstu verðlaun, og alls unnu fimm lið til verðlauna. Hjá þremur liðum hreyfðu allir liðsmenn sig á hverjum degi þær þrjár vikur sem keppnin stóð og fengu því liðin 90-60-90, Stórasta lið í heimi og Sýnurnar öll fyrstu verðlaun fyrir fjölda þátttökudaga. Liðið FEDi framar fékk fyrstu verðlaun innan Actavis fyrir tímalengd hreyfingar, en þar hreyfði hver liðsmaður sig að meðaltali í 2 klst og 24 mín hvern dag sem keppnin stóð.

Actavis sigraði einnig í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins 2009, í flokki stærri fyrirtækja.
Hjá Actavis er lögð mikil áhersla á heilbrigði og vellíðan starfsfólks, og starfar sérstakt heilsuteymi hjá fyrirtækinu. Actavis fékk sérstaka heiðursviðurkenningu 2009 sem góð fyrirmynd í heilsueflingu á vinnustöðum og fyrirtækið var fulltrúi Íslands á ráðstefnu um heilsueflingu á vinnustöðum sem haldin var á Ítalíu.
Vefur Lífshlaupsins